Stjórn Félags atvinnurekenda samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag, 12. apríl:
Stjórn Félags atvinnurekenda hvetur flokkana á Alþingi til að ná góðu samkomulagi um þingstörfin fram til boðaðra kosninga í haust og ná víðtækri samstöðu um ýmis mál sem snerta hagsmuni atvinnulífsins og brýnt er að verði að lögum. Þar ber einna hæst boðuð frumvörp sem samþykkja þarf til að greiða fyrir aflandskrónuútboði og losun gjaldeyrishaftanna, jafnframt lækkun tryggingagjalds á fyrirtæki og ný lög um opinber innkaup og ársreikninga, svo dæmi séu nefnd. Stjórnin vísar að að öðru leyti til neðangreinds lista yfir þingmál sem eru mikilvæg fyrir atvinnulífið.
Stjórn FA leggur jafnframt áherslu á að þingið setji í forgang að afgreiða þau mál sem snúa að innleiðingu EES-reglna. Nauðsynlegt er að rétta af innleiðingarhallann svokallaða; Ísland stendur sig enn alltof illa í innleiðingu EES-reglna og afleiðingarnar eru dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum sem hefði mátt afstýra. Einsleitt regluverk á öllu Evrópska efnahagssvæðinu er mikið hagsmunamál fyrir íslensk fyrirtæki.
Þá hvetur stjórnin stjórnmálaflokkana til að skuldbinda sig til að stefna að því að í fjárlögum ársins 2017 verði hvergi slakað á aðhaldi í ríkisfjármálum. Aðhaldssöm ríkisfjármálastefna er nauðsynleg til að styðja við aðhald og virkni peningamálastefnunnar nú þegar spenna er í þjóðarbúskapnum.
Mikilvæg þingmál fyrir atvinnulífið
- Frumvörp til að styðja við aflandskrónuútboð og losun gjaldeyrishafta
- Skattar og gjöld – kveður m.a. á um lækkun tryggingagjalds og bann við póst- og netverslun Fríhafnarinnar.
- Gjalddagar aðflutningsgjalda – Frumvarp viðskipta- og efnahagsnefndar. Kveður á um tvískiptingu gjalddaga aðflutningsgjalda sem er talsvert hagsmunamál fyrir smærri innflytjendur.
- Ársreikningar – mikil einföldun og sparnaður fyrir meirihluta fyrirtækja.
- Opinber innkaup – margar breytingar til bóta fyrir birgja hins opinbera.
- Hlutafélög – Einföldun lagaumhverfis hluta- og einkahlutafélaga, m.a. hvað varðar stofnun og skráningu.
- Fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti – Auðveldar sprotafyrirtækjum að fjármagna sig.
- Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða – heimild til fjárfestingar í óskráðum bréfum smærri fyrirtækja m.a. fest í sessi
- Lyfjalög – heildarlöggjöf um lyfjageirann
Viðtal um málið á Bylgjunni við Ólaf Stephensen framkvæmdastjóra FA