Fríða skart á Skólavörðustíg hlýtur Njarðarskjöldinn og er ferðamannaverslun ársins 2017. Verðlaunaafhendingin fór fram í Höfða í gær en þetta er í 22. skipti sem verðlaunin eru veitt. Félag atvinnurekenda stendur að verðlaununum ásamt Reykjavíkurborg og fleiri félagasamtökum og fyrirtækjum. Tulipop, sem einnig er við Skólavörðustíg, fékk Freyjusóma, viðurkenningu til þeirrar verslunar sem kemur með ferskastan andblæ í ferðamannaverslun í miðbænum.
Njarðarskjöldurinn er viðurkenning og hvatningarverðlaun sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu. Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefjar og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, afgreiðslutími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum. Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.
Í ár hlýtur verslunin Fríða Skart Njarðarskjöldinn fyrir verslun sem er í umsögn dómnefndar sögð einkennast af hlýleika og fagmennsku. Fríða Skart er lítið fjölskyldufyrirtæki við Skólavörðustíg, sem hjónin Fríða J. Jónsdóttir og Auðunn G. Árnason reka. Fríða útskrifaðist sem gullsmiður 1992 og hefur starfað við fagið allar götur síðan. Þau opnuðu eigin verslun í Hafnarfirði 2007 en fluttu verslun sína árið 2015 á Skólavörðustíg 18, í hjarta miðbæjar Reykjavíkur.
Tulipop hlýtur Freyjusómann
Freyjusómi er veittur þeirri verslun sem sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni fyrir árið 2017. Verslunin Tulipop fær Freyjusómann í ár fyrir „skemmtilega verslun þar sem ævintýrið grípur gesti um leið og labbað er inn. Verslunin er stílhrein, litrík og hefur breytt vöruúrval þar sem fígúrurnar á eyjunni Tulipop finnast í hinum ýmsu hlutverkum,“ eins og segir í rökstuðningi dómnefndar.
Tulipop hönnunarfyrirtækið var stofnað 2010 af tveimur vinkonum, Signýju Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur, með það markmið að búa til skapandi og fallega vörulínu fyrir börn á öllum aldri. Signý er hönnuðurinn á bak við veröldina og Helga stýrir viðskiptahlið fyrirtækisins. Tulipop vörulínan er í dag seld í fjölda verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu í 8 löndum utan Íslands. Allar vörur er jafnframt hægt að kaupa í vefverslun Tulipop.
Í dómnefnd Njarðarskjaldarins sitja fulltrúar frá Reykjavíkurborg, Miðborginni okkar, Félagi atvinnurekanda, Samtökum verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtökum Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Íslandi. Bjarndís Lárusdóttir, skrifstofustjóri FA, er fulltrúi félagsins í dómnefnd.