Óbreytt stjórn að loknum aðalfundi

27.02.2026

Stjórn Félags atvinnurekenda er óbreytt að loknum aðalfundi félagsins í gær. Þrír stjórnarmenn, sem voru kjörnir í stjórn til tveggja ára á aðalfundi 2024 sóttust eftir endurkjöri og voru sjálfkjörnir. Þetta eru þau Anna Kristín Kristjánsdóttir, starfandi stjórnarformaður hjá Hvíta húsinu, Guðmundur R. Sigtryggsson framkvæmdastjóri Xco og Njóta ferða og Leifur Örn Leifsson, framkvæmastjóri fyrirtækjasviðs Innness.

Fyrir sátu í stjórn, kjörin á aðalfundi í fyrra, þau Friðrik Friðriksson, formaður FA og forstjóri og eigandi Aflvéla og Burstagerðarinnar, Dagný Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. og Eldvarnamiðstöðvarinnar og Lilja Dögg Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Lyfjasviðs Icepharma.

Á fundinum var kynnt skýrsla stjórnar um starf félagsins árið 2025, sem nálgast má á hlekknum hér að neðan.

Ársskýrsla FA 2025

Nýjar fréttir

16. apríl 2026

Innskráning