Frumvarpsdrög um tóbaks- og nikótínvarnir: ÁTVR á að hafa eftirlit með eigin keppinautum og ráðherra fær alltof mikið vald

24.08.2026

Félag atvinnurekenda gagnrýnir harðlega drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um tóbaks- og nikótínvarnir, sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í sumar. Á meðal þess sem FA gagnrýnir, er að fela skuli Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, sem er sjálf bæði framleiðandi og seljandi tóbaksvara, víðtækt eftirlit og heimildir til margs konar inngripa gagnvart framleiðendum og innflytjendum vara, sem eru í beinni samkeppni við eigin framleiðsluvörur ÁTVR. Þá rökstyður FA að með reglugerðarheimildum í frumvarpsdrögunum séu heilbrigðisráðherra gefnar alltof rúmar heimildir til inngripa í stjórnarskrárvarin réttindi á borð við atvinnufrelsi, eignarrétt og tjáningarfrelsi.

FA styður markmið frumvarpsdraganna um vernd lýðheilsu og að draga úr notkun tóbaks- og nikótínvara meðal barna og ungmenna. Að mati félagsins ganga drögin hins vegar víða lengra en nauðsyn ber til og fela í sér íþyngjandi og illa rökstuddar takmarkanir sem kunna að vera í ósamræmi við meginreglur stjórnarskrár og EES-réttar.

Illa rökstudd inngrip í stjórnarskrárbundin réttindi
Á mörgum sviðum er lagt til að skerða atvinnufrelsi og viðskiptafrelsi án þess að sýnt sé fram á að vægari úrræði dugi ekki til að ná markmiðum frumvarpsins. FA telur að greinargerðin fullnægi ekki þeim kröfum sem gera verður til rökstuðnings fyrir svo íþyngjandi aðgerðum. Meðal annars á að fá heilbrigðisráðherra vald til að ákveða með reglugerð að banna bragðefni í nikótínvörum, kveða á um einsleitar umbúðir fyrir nikótínvörur og lækka hámarksnikótínstyrk í sígarettum og rafrettuvökva, en FA bendir á að allt séu þetta veruleg inngrip í stjórnarskrárvarin réttindi fyrirtækja. Alþingi geti ekki, meðal annars í ljósi ákvæða stjórnarskrárinnar um þrískiptingu ríkisvaldsins, falið ráðherra svo mikið vald án takmarkana.

ÁTVR hafi eftirlit með keppinautunum
Að mati FA er það verulegt áhyggjuefni að ÁTVR, sem sjálft framleiðir og selur tóbaksvörur, skuli jafnframt fá eftirlits- og ákvörðunarvald gagnvart keppinautum sínum. Slík skipan veki alvarleg álitaefni um óhlutdrægni, jafnræði og samræmi við EES-samninginn, sem leggur bann við því að starfsemi opinberra fyrirtækja fari í bága við samkeppnisreglur samningsins.

ÁTVR gegnir í dag ákveðnu eftirlitshlutverki gagnvart t.d. framleiðendum og innflytjendum tóbaks, þrátt fyrir að fyrirtækið sé sjálft framleiðandi íslenska neftóbaksins. Með frumvarpsdrögunum, þar sem ætlunin er að steypa saman löggjöf um tóbak og nikótínvörur, er hlutverk ÁTVR útvíkkað stórlega og stofnuninni falið eftirlit og ríkar valdheimildir gagnvart innflytjendum og framleiðendum nikótínpúða, sem eru í beinni samkeppni við framleiðsluvöru stofnunarinnar, en íslenska neftóbakið er aðallega notað í vör.

Samkvæmt texta frumvarpsdraganna verður þessum seljanda og framleiðanda tóbaksvara, ÁTVR, fengið vald til þess meðal annars að

  • banna innflutning og sölu á vörum keppinauta eða innkalla vörur þeirra af markaði
  • krefja keppinauta um upplýsingar og gögn
  • fá afhent sýnishorn og uppskriftir af vörum keppinauta
  • fá upplýsingar um sölumagn vara keppinauta
  • gera prófanir á vörum keppinauta til að meta hvort þær standist ákvæði laganna
  • móttaka tilkynningar keppinauta með sex mánaða fyrirvara um hvort þeir hyggist setja nýja vöru á markað
  • veita keppinautum leyfi til að selja vörur í netsölu
  • skoða framleiðslustaði og vörugeymslur keppinauta og taka sýni af vörum þeirra
  • leita aðstoðar lögreglu ef með þarf við framkvæmd þvingunarúrræða gagnvart keppinautum

„Að mati FA er augljóst að með því að afhenda  ÁTVR eftirlitsheimildir gagnvart keppinautum, aðgang að upplýsingum sem aðrir markaðsaðilar hafa ekki og áhrif á ákvarðanir um markaðsaðgang eða framkvæmd reglna er verið að veita opinberum aðila sérstöðu, sem raskað getur samkeppni á markaði. Það verður vart talið samrýmast 59. gr. EES-samningsins,“ segir í umsögn FA.

Hægt að ná markmiðunum með öðrum úrræðum
FA telur að unnt sé að ná markmiðum frumvarpsins með markvissari og meðalhófskenndari úrræðum, sem samrýmast betur stjórnarskrá, EES-rétti og vönduðum stjórnsýsluháttum. Þar leggur félagið aðaláherslu á skilvirkt eftirlit með aldursmörkum við sölu tóbaks- og nikótínvara.

Umsögn FA í heild

Nýjar fréttir

3. júlí 2026

Innskráning