Af hverju er hærri áfengisskattur á bjór en léttvíni?

30.01.2026

Grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, í Morgunblaðinu 30. janúar 2026.

Í ágætri fréttaskýringu Höskuldar Daða Magnússonar í Morgunblaðinu í gær er farið yfir hvernig verð á bjór hækkar stöðugt og ýmsir veitingamenn eru farnir að grípa til þess ráðs að minnka skammtinn til að halda verðinu viðráðanlegu. Í umfjöllun blaðsins er rætt við Einar Bárðarson, framkvæmdastjóra SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, sem gerir hina háu áfengisskatta á Íslandi að umtalsefni og hvetur til lækkunar þeirra. Í umfjölluninni er ennfremur vakin athygli á því að hærri áfengisskattur er lagður á bjór en á léttvín, sem mörgum þykir skjóta skökku við.

Hæstu áfengisskattar á Vesturlöndum
Félag atvinnurekenda hefur um árabil barizt gegn sífelldri hækkun áfengisskatta. Þeir eru þeir langhæstu í hinum vestræna heimi. Ísland er æ meira úr takti við önnur ríki hvað varðar skattlagningu á áfengi. FA hefur ítrekað bent á skaðsemi þessa fyrir neytendur, veitingageirann, ferðaþjónustuna og auðvitað innlenda áfengisframleiðslu, sem er vaxandi grein og í sterkum tengslum við ferðaþjónustuna. Hlustunarskilyrðin eru hins vegar jafnléleg í fjármálaráðuneytinu og á Alþingi, sama hverjir fara þar með völdin.

Eitt af því sem FA hefur bent á er mismununin í skattlagningu á bjór og léttvíni. Áfengisgjald á hvern sentilíntra hreins vínanda í bjór er um 10% hærra en skattur á áfengiseiningu í léttvíni. Þetta skekkir samkeppnisstöðu innlends áfengisiðnaðar, enda er framleiðsla bjórs blómleg og vaxandi atvinnugrein, en engin léttvínsframleiðsla á Íslandi eins og flestum er kunnugt.

Umfjöllun Morgunblaðsins

Engin rök finnast fyrir mismunandi skattlagningu …
Haustið 2023 sendi FA fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi og fór fram á rökstuðning fyrir þessari mismunun í skattlagning. Félagið spurði m.a. hvaða markmiðum væri stefnt að með löggjöfinni um skattlagningu á áfengi og hvernig þessi mismunandi skattlagning næði þeim markmiðum.

Svarbréf fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem barst í nóvember 2023, benti eindregið til þess að ráðuneytið vissi ekki sjálft hvaða rök, ef einhver, eru fyrir því að hafa áfengisgjald á bjór hærra en á léttvíni. Í bréfinu var rakið að þegar frumvarp til núverandi laga um áfengisskatta var rætt á Alþingi á sínum tíma, árið 1998, hefði komið fram að rétt þætti að skipta áfengissköttum upp í skatta á bjór, léttvín og sterkara áfengi til þess að „hægt væri að taka ákvörðun um um lækkun á hverjum flokki fyrir sig.“ Ráðuneytinu tókst hins vegar ekki að útskýra hvernig sjónarmið um neyzlustýringu, sem fram komu við framlagningu og flutning  málsins á Alþingi, réttlættu að með skattlagningu væri neyzlu beint úr léttara áfengi (bjór) í sterkara (léttvín).

… en ekkert breytist
„Fjármála- og efnahagsráðuneytinu er ekki unnt, umfram það sem að framan er rakið, að tilgreina frekar þau sjónarmið og þau markmið sem stefnt var að með umræddri skiptingu áfengisgjaldsins né leggja mat á hvernig hin mismunandi skattlagning hafi náð þeim markmiðum,“ sagði í svari ráðuneytsins, sem verður að teljast heldur endasleppt.

Með öðrum orðum: Fjármálaráðuneytið sjálft hefur ekki hugmynd um af hverju hærri áfengisskattur er á bjór en léttvíni. Engu að síður hefur ráðuneytið, eða þeir sem þar halda um stjórnartauma, ekki gert nokkurn skapaðan hlut til að breyta þessu ójafnræði.  

Nýjar fréttir

4. febrúar 2026

Innskráning