Ekkert svindl við innflutning félagsmanna FA á pitsuosti

11.11.2020

Talsvert hefur verið fjallað að undanförnu um misræmi í tölum Evrópusambandsins um útflutning á búvörum til Íslands og tölum íslenskra stjórnvalda um innflutning. Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu að lítið misræmi væri í tölum um kjötviðskipti, en á árunum 2017-2019 hefði 21% meira verið flutt út af mjólkurvörum til Íslands samkvæmt tölum ESB en íslensk tollayfirvöld hefðu skráð inn til landsins.

Í minnisblaði, sem hópurinn skilaði með niðurstöðum sínum, voru nefndar ýmar orsakir sem gætu skýrt þennan mun. Margar snúa að gæðum þeirra gagna, sem fylgja vörum í milliríkjaviðskiptum og eru fremur tæknilegs eðlis en að um sé að ræða eitthvert misferli.  Ein líklegasta ástæðan fyrir misræminu er misflokkun vöru, þ.e. að hún sé flokkuð á ólíkan hátt á milli landa. „Vara getur verið flokkuð á ólíkan hátt í tveimur löndum, annars vegar vegna mistaka, þ.e. óvart er sett rangt tollskrárnúmer, eða sá sem fyllir út skýrsluna veit ekki betur. Hins vegar getur verið sett rangt tollskrárnúmer af ásetningi til að forðast greiðslu aðflutningsgjalda þar sem gjöld eru misjöfn eftir tollskrárnúmerum,“ segir í minnisblaðinu.

Ýmsir talsmenn landbúnaðarins hafa beint allri athygli að síðastnefndu skýringunni og haft uppi stór orð um lögbrot, misferli og smygl. Í því samhengi hefur sérstaklega verið nefndur innflutningur á pitsuosti, sem inniheldur jurtaolíu og hefur verið fluttur inn til landsins án tolla.

Sambærileg innlend vara ekki til
Í framhaldi af þessum ásökunum hefur Félag atvinnurekenda aflað upplýsinga bæði hjá félagsmönnum sínum, sem flytja inn pitsaost, og hjá fjármálaráðuneytinu. Sú upplýsingaöflun hefur leitt þrennt í ljós.

Í fyrsta lagi er um að ræða vöru, sem sérstaklega er framleidd fyrir pitsugerð með jurtaolíublöndun til þess að osturinn bráðni jafnar og betur, brenni síður og haldi gæðum lengur. Engin sambærileg vara er til frá innlendum framleiðendum.

Í öðru lagi hafa þeir pitsuostar með jurtaolíu, sem félagsmenn FA hafa flutt inn, verið fluttir út úr ríkjum ESB og inn til Íslands á sömu tollnúmerum. Sá innflutningur útskýrir því ekki misræmi í út- og innflutningstölum og skýringa á því hlýtur að vera að leita annars staðar.

Fullt samþykki tollayfirvalda
Í þriðja lagi liggur fyrir að viðkomandi vörur hafa verið tollflokkaðar með þeim hætti sem um ræðir, þ.e. í þá kafla tollskrár sem ekki bera tolla, árum saman og með fullri vitneskju og samþykki tollayfirvalda. Sérfræðingar tollgæslustjóra hafa verið eindregið þeirrar skoðunar að við blöndun jurtaolíu við ost úr kúamjólk færist varan úr 4. kafla tollskrár í þann 21. Þeir hafa um þessa flokkun m.a. leitað ráðgjafar hjá erlendum tollgæsluembættum og aflað álits Alþjóðatollamálastofnunarinnar (WCO).

Á undanförnum mánuðum hafa hagsmunaaðilar í landbúnaði, þ.e. Bændasamtök Íslands, Landssamband kúabænda og Mjólkursamsalan, farið fram á það við stjórnvöld að tollflokkun umræddra vara verði breytt, þannig að þær beri háa tolla og hækki þar af leiðandi í verði. Þannig sé hagur umræddra aðila réttur í samkeppni við innflutning, á kostnað neytenda. Fjármálaráðuneytið hefur tekið undir þessar kröfur, a.m.k. hvað varðar sumar tegundir slíkra pitsuosta, og beint því til tollgæslustjóra að umræddar vörur verði flokkaðar í 4. kafla tollskrárinnar, sem ber háa tolla. Umrædd fyrirtæki skoða nú stöðu sína vegna þessarar breytingar á áralangri framkvæmd.

Ekki misnotkun á kerfinu
Eftir stendur hins vegar að ekki er nokkur leið að saka umrædd fyrirtæki um tollasvindl, smygl eða önnur lögbrot. Fyrirtækin fylgdu leiðbeiningum og ákvörðunum tollayfirvalda um tollflokkun. Þetta staðfesti Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, í umræðum á Alþingi 22. október síðastliðinn, en hann nefndi þar dæmið um pitsuostana og sagði „erfitt að halda fram að menn hafi verið að misnota kerfið þegar tollurinn hafði skoðun á því að varan ætti heima þar sem hún var flokkuð.“

„FA ítrekar þá afstöðu sína að tollasvindl eigi ekki að líðast – en engin leið er að kalla þann innflutning, sem hér um ræðir, því nafni,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning