Hvaða áhrif hafa stóraukin ríkisumsvif vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar á samkeppni fyrirtækja á markaði? Hvernig er hægt að forðast að aðgerðir vegna kórónuveirukreppunnar veiki samkeppni? Hvar hafa stjórnvöld misstigið sig? Hvernig flýtir virk samkeppni fyrir efnahagsbatanum?
Þessum spurningum og ýmsum fleirum verður velt upp á fundi Félags atvinnurekenda, sem haldinn verður í tengslum við aðalfund félagsins fimmtudaginn 11. febrúar. Fundurinn verður í beinu streymi á Facebook-síðu FA og á visir.is.
Dagskrá:
14.00 Setning fundarins – Magnús Óli Ólafsson formaður FA
14.05 Ávarp – Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra samkeppnismála
14.10 The role of competition policy in supporting economic recovery – Ania Thiemann, sérfræðingur í samkeppnismálum hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD
14.25 Á samkeppnismarkaði að keppa við ríkið – Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
14.40 Breytt búvörulög og samkeppni á matvörumarkaði – Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Innnesi
14.55 Sókn er besta vörnin – verndarstefna skaðar atvinnulíf og almenning – Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.