Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Félag atvinnurekenda og Íslandsstofa boða til hádegisfundar um tækifæri í viðskiptum íslenskra fyrirtækja og sérhæfðra fyrirtækja frá borginni Foshan í Guangdong-héraði í Kína. Fyrirtækin eru í margs konar iðnaði og tæknigreinum, m.a lasertækni, fjarskiptatækni, loftræstitækni, bifreiðavarahlutum, prentvélatækni, rafeindatækni fyrir bílaiðnað, margmiðlunarbúnaði, rafstöðva- og raftækni, dælu-, glussa- og vökvatækni svo nokkuð sé nefnt.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 11. september kl. 10:00–13.00 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi. Boðið verður upp á beina fyrirtækjafundi (B2B) með einstökum fyrirtækjum í sendinefndinni.
DAGSKRÁ
- Ársæll Harðarson, formaður Kínversk-íslenska viðskiptaráðsins, býður gesti velkomna.
- Wang Zheng, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptaskrifstofu Foshan-borgar, ávarpar gesti og kynnir möguleikana á viðskiptum milli aðila.
- Þorleifur Þór Jónsson, frá Íslandstofu, kynnir íslensku fyrirtækin.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, stýrir fundi. Létt hádegisverðarhlaðborð að loknum fundum.
Heildarlisti og kynning á fyrirtækjunum