Verðlagsþróun á Íslandi undanfarin misseri

08.03.2013

Haldinn var félagsfundur þar sem rætt var um verðhækkanir í þjóðfélaginu undanfarin misseri. Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda hélt erindi þar sem hann sýndi tölur og gröf á verðlagsþróun, þróun gengisvísitölunnar og innflutningsverðlags. Hér má sjá gögnin sem Félag atvinnurekenda hefur tekið saman.

 

 

Frá hruni hafa verið stöðugar verðlagshækkanir í þjóðfélaginu. Gengisvísitalan hefur rokið upp og hafa innflytjendur þurft að hækka sitt verðlag í samræmi við það. Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu varðandi innflytjendur og verðhækkanir. Er haldið fram að gengislækkun sé fljót að skila sér út í verðlag en verði styrking gengis séu verðlækkanir ekki sjáanlegar.

Séu tölur frá byrjun árs 2008 skoðar kemur í ljós að innflutningsverðlag hefur hækkað mun minna en gengisvísitalan. Frá byrjun árs 2011 hefur verðlagið hins vegar fylgt gengisþróuninni nánast algjörlega eftir.

 

undirliðir verðbólgu (661x800)

Helstu niðurstöður

 

Gengisvísitala hefur hækkað sem um nemur 95,5% frá janúar 2008 en um 12,5% frá janúar 2011

Innflutningsverðlag hefur hækkað um 68,4% frá janúar 2008 og um 12,3% frá janúar 2011

Vísitala neysluverðs hefur hækkað 42,8% á sama tímabili

Árið 2012 mældist verðbólgan 5,2% og spáir Seðlabanki Íslands 3,8% verðbólgu árið 2013

Á tímabilinu frá janúar 2011 til febrúar 2013 hefur innlend matvara, búvörur án grænmetis og bensín hækkað hvað mest

Innfluttar vörur og húsnæði hafa hækkað töluvert minna

 
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna feb 13
 

Gögnin sem stuðst er við eru að mestu fengin úr riti Seðlabanka Íslands, Peningamálum, og frá Hagstofu Íslands. Einnig eru gögn frá DataMarket og Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Smelltu hér til að skoða gögnin

Nýjar fréttir

Innskráning