Komið verði böndum á sérréttindi ríkisstarfsmanna

FA talaði eindregið fyrir því að gerðir yrðu samningar við starfsmenn hins opinbera á sömu nótum og á almenna markaðnum og hið opinbera hætti að vera leiðandi í þróun launa og kjara á vinnumarkaði, eins og hefur því miður verið raunin undanfarin ár. Þá færði félagið rök fyrir því að breytingar á lögunum um réttindi […]
Garnirnar raktar úr stjórnmálamönnum fyrir kosningar

Hlaðvarpsþáttur FA hóf göngu sína á ný fyrir alþingiskosningarnar í nóvember. Þátturinn birtist bæði á Spotify og Youtube, auk samfélagsmiðla FA. Forsvarsmenn flestra helstu stjórnmálaflokkanna mættu í Kaffikrókinn og ræddu um stefnu flokka sinna varðandi fyrirtækin og atvinnulífið við framkvæmdastjóra FA. Kaffikrókurinn vakti mikla athygli og ýmis ummæli forystumannanna urðu fleyg í fréttum.
Ráðherra gagnrýndur fyrir inngrip í eignarrétt og atvinnufrelsi

FA gagnrýndi harðlega reglugerð heilbrigðisráðherra, þar sem sett voru ákvæði um svokallaðar einsleitar umbúðir tóbaksvara, brúnar umbúðir án vörumerkja eða annarra einkenna. FA benti á að vörumerki teldust til eignarréttinda. Þá væri reglugerðarákvæðið skýrt inngrip í atvinnufrelsi, en bæði eignar- og atvinnuréttindi njóta verndar stjórnarskrárinnar. FA sagðist ekki sjá hvernig svo íþyngjandi ákvörðun, sem takmarkar […]
Gagnrýni á fjölgun og sérréttindi ríkisstarfsmanna

Á aðalfundi FA í febrúar var kynnt skýrslan „Er ekki bara best að vinna hjá ríkinu?“ sem Intellecon vann fyrir félagið. Skýrslan vakti mikla athygli og fékk góða umfjöllun í fjölmiðlum. Á meðal niðurstaðna var að starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga fjölgaði um 11.400 á árunum 2015 til 2021 sé litið til talna vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Það […]
Flutningar á 95 ára afmælisári

FA flutti skrifstofur sínar í byrjun júní, úr Húsi verslunarinnar þar sem félagið hafði starfað í um 40 ár, og í Skeifuna 11. Nýja staðsetningin er í hringiðu verslunar í Reykjavík og má nefna að í innan við kílómetra radíus eru 20 félagsmenn FA með starfsemi. Nýja húsnæðið í Skeifunni var tekið í gegn í […]
Barátta fyrir heilbrigðri samkeppni í sjóflutningum

Hækkanir á sjófrakt og ógegnsæjar verðskrár stóru skipafélaganna voru á meðal helstu umkvörtunarefna félagsmanna FA á árinu. Félagið hefur lengi talað fyrir nauðsyn aukinnar samkeppni í sjóflutningum og er óhætt að segja að það hafi stutt við þann málflutning er Samkeppniseftirlitið birti ákvörðun í máli Samskipa vegna ólögmæts samráðs við Eimskip og fylgdi henni eftir […]
Bandalag um baráttu fyrir tollalækkunum

Baráttan fyrir lækkun tolla setti svip sinn á málefnabaráttu félagsins eins og flest undanfarin ár. Í byrjun ársins myndaði FA bandalag með viðsemjendum sínum innan Alþýðusambandsins, VR og Rafiðnaðarsambandinu, um að krefja stjórnvöld um lækkun tolla í þágu baráttunnar gegn verðbólgunni. FA og stéttarfélögin kröfðust þess jafnframt að tekið yrði á háttsemi innlendra bænda og […]
Könnun FA: 90% félagsmanna ánægðir með starf og baráttu félagsins

Yfirgnæfandi ánægja er meðal félagsmanna FA með alla helstu þjónustuþætti félagsins, samkvæmt árlegri þjónustukönnun sem gerð er í aðdraganda aðalfundar. 90% félagsmanna segjast ánægðir eða mjög ánægðir með starf félagsins í heild. Mest notuðu þjónustuþættir FA voru lögfræðiþjónustan og upplýsingapóstar um margvísleg málefni, en í báðum tilvikum var ánægja með þjónustuna yfir 85%. Svipaða sögu […]
Gagnrýnisrödd gegn hæstu áfengissköttum Evrópu

FA var áfram helsti gagnrýnandi hárra áfengisskatta á Íslandi. Í byrjun ársins birti félagið niðurstöður úttektar sem það vann í samstarfi við Spirits Europe, Evrópusamtök áfengisframleiðenda, um hækkanir áfangisskatta um áramótin. Í ljós kom að af 36 Evrópuríkjum hækkuðu 26 áfengisskatta ekki neitt, þrátt fyrir metverðbólgu í flestum ríkjum álfunnar. Eina ríkið sem hækkaði þá […]
Lyfjaskortur í boði ríkisins

FA blandaði sér í umræðuna um lyfjaskort, sem upp kemur af og til, og benti á að honum yrði ekki mætt með auknu eftirliti ríkisins, sem lagt hefur verið til, heldur með því að breyta stefnu stjórnvalda varðandi verðlagningu lyfja og gjaldtöku af lyfjafyrirtækjum. FA benti á að annars vegar væri það stefna stjórnvalda um […]
Gegn spillingu og samkeppnishömlum í farmiðakaupum ríkisins

FA beitti sér fyrir því að ríkisstofnanir tækju hagkvæmasta kostinn þegar keyptir væru flugfarmiðar fyrir starfsmenn þeirra, en sýnt var fram á að Alþingi og fleiri ríkisstofnanir versluðu langtum minna við Play en Icelandair og tengd fyrirtæki, raunar óeðilega lítið miðað við framboð Play á flugferðum. FA benti á að það að starfsmenn fengju vildarpunkta […]
Starfsemi á vegum viðskiptaráðanna

Að vanda var öflugt starf á vegum millilandaviðskiptaráðanna fjögurra sem FA rak á árinu. Samstarfi FA og Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins var slitið í lok ársins. Á árinu stóð ÍKV hins vegar fyrir áramótafagnaði vegna kínversku áramótanna ásamt Kínversk-íslenska menningarfélaginu og sendiráði Kína, og málþingi um samstarf Íslands og Kína í loftslagsmálum. Íslensk-evrópska viðskiptaráðið lýsti meðal annars […]